Tengingar viđ sjálfa mig

Auglýsing

Tengingar viđ fortíđina

Tengingar viđ fleira fólk

Jósep...

21. janúar 2008 klukkan 21:10
...borðar snigla og bjargar alltaf deginum!

Honum tókst nú ekki að bjarga Degi B. Eggertssyni frá þeim stórundarlegu atburðum sem áttu sér stað í Borgarstjórn Reykjavíkur í dag ... né heldur bjarga okkar ástkæra handboltalandsliði frá lélegum leik í gær!
Sumir dagar eru bara svona!

Bloggleysið sem hefur hrjáð ykkur, glöggir lesendur mínir, stafar af margvíslegum ástæðum. Benedikt ákvað að sætta sig ekki lengur við lélegt netsamband á heimilinu og dró "ráterinn" okkar upp úr kassa og tengdi við símann - svo nú hefur hann netsamband á meðan við mamma erum án heimilissíma. Við þessa fjölgun "rátera" á heimilinu ákvað fartölvan mín að vera með uppsteit. Hún þrjóskast þó við það að segja mér að ég sé:
"Connected to bensi - signal streangth exellent"

Hún hlýtur þá að vera að tala um samband mitt við föður minn því ekki kemst ég inn á nokkra vefsíðu á þessum blessaða veraldarvef!

Önnur ástæða er sú að skólinn minn byrjaði aftur strax á fyrsta virka degi ársins - mér til mikillar gleði. Við erum nefnilega að taka heilan áfanga á 28 dögum, þessi áfangi er fósturþroskafræði! Jei!

Stærsta ástæðan við bloggleysið grunar mig að sé staðreyndin að ég fékk 1. seríuna af teiknimyndaþáttaröðinni um ungu stúlkuna Heiðu sem býr með afa sínum í þýsku Ölpunum og lendir þar í margvíslegum ævintýrum með félögum sínum þeim Pétri, Jósep (sem áður var nefndur) og geitunum Svönu og Birnu.

Það tekur tíma að horfa á það - á þýsku svo ég bið ykkur velvirðingar!

Þar til næst!

Í próftíđ...

03. desember 2007 klukkan 23:47
...er flest leyfilegt!

Þar á meðal nostalgíuköst eins og þetta hér:





Ég hef oft minnst á það áður að ég var alveg viss um að ég væri Heiða þegar ég var lítil. Pabbi hjálpaði til við það og þóttist ýmisst vera Afi sem Heiða bjó hjá, eða Sebastian sem var ekillinn og brytinn hennar Klöru, vinkonu heiðu, þegar við vorum á leiðinni á Lundarsel á morgnanna. Hann gekk meira að segja svo langt að opna skottið fyrir Jósep - hundinum hans Afa, svo hann yrði ekki eftir heima.
Svo fékk ég náttkjól með englamynd sem mér fannst alveg eins og kjóllinn hennar Heiðu og var himinsæl með það allt. Til að toppa þetta altsaman lékum við Guðný Lára, sem var bestasta besta vinkona mín, okkur í Heiðu leik. Það passaði svo ósköp vel að hún vildi aldrei vera Heiða eins og ég, heldur vildi hún vera Klara - besta vinkona Heiðu!
Þetta voru svo sannarlega góðir tímar!

Þar til næst.

Denne side oprigt...

21. nóvember 2007 klukkan 14:07
...ma ikke tildækkes!

Þetta var fyrsta setningin sem ég lærði á dönsku.
Lærði hana að vísu löngu áður en ég vissi hvað hún þýddi og á hvaða tungumáli var skrifað. Núna veit ég að sjálfsögðu að þetta þýðir að þessi hlið eigi að snúa upp og meigi ekki vera hulin einhverju.
Það er líka alveg sérstaklega rökrétt þar sem þetta stóð á forláta blástursofni sem var í eigu fjölskyldunnar minnar "hérna í den".
Ég kallaði blástursofninn að vísu alltaf "hitaraofinn" enda blés hann heitu lofti á mig þegar ég var búin í baði. Það var notalegt.
Mig langar alveg óskaplega mikið í hitaraofninn þessa dagana.
Mér er búið að vera kalt.

Held að ég sé með einhverja flumbru í mér, ekki alvarlegt en óþægilegt og alger óþarfi.

Ég byrjaði svo "jólin mín" um helgina þegar ég opnaði Bókatíðindi. Uppgövtaði mér til mikillar skelfingar að ég er orðin fullorðin. Bækurnar í flokkunum Íslenskar barna- og unglingabækur og Þýddar barna- og unglingabækur höfðuðu ekki til mín en þar á móti fann ég mig vera að skoða Fræðibækur og bækur allmenns efnis og hina fullorðinsflokkana ýtarlega. Tiltar eins og Kleppur í 100 ár virtust höfða mun meira til mín en Kossar og ólívur eða Gæsahúð.
Hvað það er alltaf sorglegt að fullorðnast. Kannski ég líti á þetta með öðrum hætti og segist vera vaxandi nörd frekar en manneskja (Eru nörd þá ekki manneskjur?) . Ég ætla ekki að fullorðnast!

Ég er Pétur Pan!


Ég hlakka rosalega til jólanna og er alveg að verða búin að ákveða hvað ég ætla að gefa hverjum í jólagjöf, fyrst eru samt prófin:
- 3.des : Vefja og frumulíffræði
- 5. des : Heimspeki
- 10. des : Vöxtur og þroski
- 12. des : Hjúkrunarfræði
- 14. des : Líffærafræði
...ég held mér sé betur við próf í janúar, eins og í MA!

Þar til næst!

Einn af ţessum...

14. nóvember 2007 klukkan 18:32
...hornréttu dögum!

Í dag kom ég heim úr heimspeki - þar sem mér tókst að sjálfsögðu að verða ósammála umræðuhópnum mínum eins og í öllum öðrum umræðutímum í vetur, í dag vorum við ósammála um fóstureyðingar - en ég kom heim og fann strax að þetta var einn af þessum dögum:

Ég byrjaði að brjóta saman þvott og taka úr vélinni sem ég setti í gang í morgun og setti svo í aðra vél, aðallega föt sem voru á gólfinu í herberginu mínu.
Ég vandaði mig gífurlega við að brjóta öll handklæði hornrétt, alla boli jafnt og fallega og nærbuxurnar brotnar eins og unnt er að brjóta svo litlar flíkur.
Svo kom ég upp á baðherbergi og tók til í skápnum mínum, snyrtiveskinu mínu og sundtöskunni minni. Svo þurrkaði ég upp linsuvökvann sem ég sullaði á bekkinn í morgun og rykið af hillunni.
Síðan raðaði ég skólabókunum mínum fallega upp á borðið og henti gömlum dagblöðum og dagskrám í blaðakassann okkar.
Eftir það tók ég úr uppþvottavélinni og raðaði öllum bollunum í skápinn svo þeir snúa allir á sömu vegu og samstæð glös voru flokkuð í raðir. Gafflarnir liggja svo allir eins í hnífaparaskúffunni.
Að lokum varð ég pirruð á því að hundurinn minn er að missa öll hárin og tók límrúllu og límrúllaði allan sófann, raðaði fjarstýringunum eftir stærð á borðpúðann við sófann og moppaði svo gólfið!

Af þessum lýsingum mætti dæma að húsið hafi verið á hvolfi þegar ég kom heim en það var alls ekki þannig, þvert á móti var allt mjög fínt eins og er nú oftast í kringum móður mína - jahh, nema kannski þessir örfáu fermetrar sem við Andri sofum á og við!
Það var bara þessi þráhyggja, sama þráhyggjan og hertók mig þegar ég var að vinna á Kristnesi sumarið 2004 og blossar alltaf upp inn á milli - ég held ég ætli að hætta að kalla þetta þráhyggu og fara að kalla þetta: "að vera heimilisleg" Þó að allt þurfi að snúa eins, allt að vera í stíl og skipulagt og hornrétt... bara voða domestic eitthvað!


Svona var ég ægilega ánægð að taka úr þvottavélinni áðan!

Bókatíðindin komu annars inn um bréfalúguna (sem ég held að Týra ætli að éta áðuren við skilum húsinu aftur til eigenda sinna) og ég var næstum búin að þjófstarta jólaundirbúningnum mínum með því að opna þau!
Það er ekki fyrr en á mánudaginn sem ég má fara að glugga í þau, því þá hefst formlegur jólaundirbúningur hjá mér!

Ég er svo leiðinlegur bloggari að ég æli bráðum á mig!

Þar til næst!

Ţegar ég var 4. ára...

07. nóvember 2007 klukkan 14:06
...bakaði ég eiturköku handa Davíð Oddssyni!

Ég held ég hafi einhverntíman bloggað um eiturkökuna áður...eða kannski ekki! Ef svo er þá hefur líklega verið tilefni til þess að láta Davíð fara meira í taugarnar á sér en á venjulegum miðvikudegi 
Ég held að ég hafi sjaldan verið jafn ánægð og þegar Davíð hætti sem forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins. Enda var ég þá handviss um að ég þyrfti aldrei að heyra í honum framar í fréttum eða sjá hárið á honum nokkurntíman aftur. En nei!
Hann tók við embætti Seðlabankastjóra og vinnur nú ötullega að því að gera þjóðina gjaldþrota með vaxtahækkunum og talar niðrandi um Evruna við hvert tækifæri - svo öll þjóðin heyri og sjái!

Já, ég er ekki laus við röddina hans úr útvarpinu. Ekki enn. Enda var ég næstum búin að keyra útaf um daginn, tvisvar. En þá var hann að tjá sig um einhvern fjandann í útvarpsfréttum RÚV kl 6!

Stundum er beinlínis flókið að vera til vinstri!

En þetta var nú leiðindaraus um pólitík...

Annað í fréttum er almennur skammdegisslappleiki. Held að nóvember hafi aldrei verið jafn tilgangslaus mánuður í lífi mínu. Þetta er í fyrsta skiptið síðan 1998 sem ég er ekki að undirbúa mig fyrir stórmót 3. helgina í mánuðinum...
Árið 1998 fór ég nefnilega fyrist á Bikar, sem þá var og hét. Ég synti 800 skrið á eitthvað um 12.30 (minnir mig) og var ekki nærri síðust (man ég vel)! Ég afrekaði það svo að synda 800 skrið í hverri einu og einustu Bikarkeppni minni eftir það!
Var einmitt að fletta um heilabúið og rifja upp skemmtilega hluti úr sundlífi mínu:

Ég man...

  • ...þegar Jóhanna þjálfari sakaði mig um að hafa svindlað í kafkeppni á æfingu í glerárlauginni! 
  • ...þegar ég keppti í fyrsta skiptið í 50m bringusundi hnáta á Sólnesmóti. Ég var 2. á eftir Valgerði en undan Kristínu.
  • ...þegar ég gerði ógilt í fyrsta skiptið á Hrafnagili.
  • ...þegar Svava var að þjálfa okkur í 38°C heitri innilauginni og endaði æfinguna á að sprauta á okkur köldu vatni úr slöngu.
  • ...þegar við sátum og klifruðum í gluggunum í gömlu forstofunni!
  • ...AMÍ 1995, þegar Kristín var yngsti keppandinn og ég næst yngst :)
  • ...þegar ég brjálaðist við Ruud!
  • ...þegar Grétar brjálaðist við Ruud og Rúnar þurfti að halda honum svo hann lemdi hann ekki!
  • ...þegar ég fór að æfa með B-hóp og tók færri tök en allir (nema Valgerður) yfir laugina og Ruud trúði mér ekki.
  • ...þegar Anna Lilja kom í fyrsta skiptið!
  • ...þegar pabbi keyrði okkur Valgerði suður á AMÍ 1998!
  • ...AMÍ 1998 í Kópavogi og allt sem því tilheyrði, Guðgeir að bjóða fólki "Sull" og sæti, enginn matur og við brunuðum á DairyQueen, ´"Sníííígöööörs"-við Möggu mömmu Kristjönu.
  • ...þegar nýja laugin kom með nýjum klefum og ég valdi mér skáp númer 26 og Kristjana númer 34 - því hann var á móti speglinum!
  • ...eftir yndislegu vetrunum hjá Hrafnhildi!
  • ...þegar við Kristjana vorum bara tvær á morgunæfingum!
  • ...þegar ég fór ein suður að keppa!
  • ...þegar Arnar Freyr startaði okkur alltaf með orðunum "Einn, tveir og milljón"!
  • ...þegar Arnar Freyr tók línuna úr lauginni og við fórum í WaterPolo!
  • ...AMÍ 1999 og fyrsta Íslandsmeistaratitilinum mínum þar. 400m skriðsund á 5.02 (held ég)! Þóra Björg varð stigahæst og roðnaði þegar ...Helgi?...kyssti hana til hamingju á sviðinu!
    (Sorrý Þóra en ég varð!)
  • ...FÆREYJAR! Vá, verð að koma með sérfærslu um það allt síðar!
  • ...AMÍ 2000 ... það var ekki skemmtilegt!
  • ...SMÍ 2000 í Kópavogi, þegar ég missti næstum af 400 fjór, við fórum í Nauthólsvík að leika okkur og þegar við Stína kvöddum Hrafnhildi!
  • ...þegar Gulli Magg var að þjálfa okkur meðan Silla var úti í Sydney!
  • ...þegar Gulli Magg hljóp upp vegginn á Gagganum og fór í heljarstökk!
  • ...þegar Elín María, Pési og Lára Bettý komu á æfingu.
  • ...þegar Brian kom í heimsókn til Sillu að horfa á æfingu og ég rústaði 8 x 100 skrið Vo2MAX setti og synti það miklu hraðar en Elín, Pési og Lára Bettý!
  • ...þegar við Elín leituðum í heilan dag að AcoPalstos!
  • ...eftir Illugastaðaferðinni sem við fórum í fyrir Bikar 2000, þegar við gerðum myndband í snjónum, laugin lokuð vegna sýkingarhættu, þegar stelpurnar strippuðu og Jússur í blómasundfötum-plaggatið varð til! ´
  • ...IMÍ 2001 þegar ég synti mig í 2. sæti í 800 skrið í morgunriðlunum og Brian óskaði mér til hamingju með að vera komin inn í Unglingalandslið (ég vissi ekkert af því!)!
  • ...Sjælland Open í Greve með Unglingalandsliðinu: Önju, Hafdísi Erlu, Berglindi Ósk, Jóni Oddi, Hirti Má, Gulla, Gunna Steinþórs og Ödda, þegar ég borðaði ekki neitt og við stelpurnar læstumst út úr herberginu okkar og Hafdís Erla brjálaðist við umheiminn!
  • ...AMí 2001 - besta og skemmtilegasta mót mitt nokkurntíman. Frábært veður og allir voru sólbrenndir (og margir með sogbletti sem sumir litu út eins og Batmanmerkið!) !
  • ...Ólympíudaga æskunnar á Spáni! Snilldar ferð með snilldar krökkum: Evu, Erlu Dögg, Hilmari Pétri, Hákoni og Jóni Gauta!
  • ...Bikar 2001 þegar 800 skrið var í Hafnarfirði og laugin var 36°C og ég hélt ég myndi deyja og boðsundstakið "uppírassintakasnúatosa" var fundið upp!
  • ...IMÍ 2002 þegar við Elín María fórum bara tvær og skokkuðum hálfa leið í Herjólfsdal á morgnanna og ég var valin efnilegust :)
  • ...Unglingalandsliðsferðina 2002 til Luxembourg þegar við vorum 5, villtumst á leiðinni og lögreglan endaði á að stoppa okkur, þegar við fórum "fínt" út að borða á McDonalds!
  • ...AMí 2002 á Laugarvatni þegar við Hafdís límdum upp á mér brjóstin og Hafdís tuðaði allan tíman yfir því að þurfa að sofa í efri koju!
  • ...Bikar 2002 þegar við unnum næstumþví 2. deildina!
  • ...NMU í Malmö - SNILLDARMÓT og frábærir tímar!
  • ...kvöldið fyrir kleinubakstur þegar við Elín, Árni og Ási gistum heimahjá Grétari!
  • ...IMÍ 2003 þegar við rökuðum okkur öll saman í einu baðkari við Elín og Árni og ég var valin í Smáþjóðaleikaliðið!
  • ...páskarnir hjá Stu!
  • ...Lux 2003 með Unglingalandsliði sem þá taldi 14 manns og ég synti 200 skrið og náði inn á EM-25 og Ólympíuhóp!
  • ...æfingabúðum Ólympíuhóps á Laugarvatni með fitumælingu og nammibúðarferð! 
  • ...Smáþjóðleika :(
  • ...þegar við fórum út að hjóla á 17. júní og ég datt og sprengdi lærvöðvann minn og var næstum búin að drepa Tómas Leó!
  • ...AMÍ 2003 með ónýtt læri og Ása í kúrekastígvélum drekkandi 10 lítra af kaffi á dag!
  • ...SMí 2003 í Hveragerði með allri brjáluðu rigningunni, Diet tannkreminu, þröngu Hafdísi og kínaskónum hennar Hafdísar sem við saumuðum með saumakittinu hans Gests!
  • ...sumarið í Reykjavík hjá Stu með 3 æfingum á dag!
  • ...EMU í Galsgow, oj!
  • ...Bikar 2003 þegar ég synti undir mínútu í 100 skrið!
  • ...EM-25 í Dublin, bara gaman og Hafdís Erla rakaði sig ofaní hitaketilinn svo við gætum horft á Simpsons á meðan, ég frysti Hafdísi Erlu á næturnar, tilurð Loafers :), sápukúlur, þegar Kobbi tók fullan kassa af baðherbergismottum af skúringarkonunum í stað handklæða og þurrkaði sér á þeim á hverjum degi!
  • ...IMí 2004 - dömubindaservíettur, græn sög, vax, Tómnór, vaxa Kobba KR, vinur okkar Dillu, Ómar að kenna okkur að girða okkur og við Elín töldumst ákaflega spes!
  • ...Lux 2004 með Óðni - Jóhann smakkaði allt og Edda var fararstjórinn okkar! Jóhann ætlaði að vera árgerð '89 árið 2005!
  • ...síðasta AMÍið mitt hérna heima á Akureyri með stórskemmtilegum baksundssprettum!
  • ...Bikar 2004 þegar við unnum 2. deildina og GirlTalk var haft í fyrsta sinn!
  • ...Frakklandsæfingabúðirnar - það þarf held ég sér færslu um hana líka, þó hún verði ekki jafn löng og Færeyjafærslan...

...og svo miklu miklu meira!
Kannski ég gefi út bók fyrir einhver jólin?
Þið gerpi sem voruð að æfa með mér og keppa: skrifið athugasemd með sameigilegri og skemmtilegri minnigu eða gullkornum frá þessum árum! Enn hvað þetta var annars leiðinlegt blogg! Held ég verði að rifja upp gamla bloggtakta með menningarbloggi - annað gengur ekki!


Ég bið að heilsa ykkur, þar til næst!

Nauđsynlegt ađ tala um hćgđir...

23. október 2007 klukkan 10:33
...samt ekki við fólk úr ólíkum menningarhópum en við Íslendingar!

Alltaf lærir maður eitthvað nýtt í þessari blessuðu hjúkrunarfræði. Þetta lærði ég í gær og í dag er ég að læra um að vera snyrtileg og prúð í fasi og framkomu. Ég spilaði Siðaspilið af krafti í fyrstu bekkjum grunnskóla og hef alltaf talið mig prúða í framkomu síðan, svo hefur mamma alltaf passað upp á það að ég sé snyrtileg til fara og ég vona að ég verði búin að læra að passa upp á það sjálf þegar ég flyt að heiman næsta haust. Þetta er greinilega mjög mikilvægt í heilbrigðisgeiranum!
Hér eru bekkjarsystur mínar í verklegum tíma í síðustu viku!
Sjáið hvað þær eru allar snyrtilegar!
 

Ég brjálaðist pínu í gær - við sjónvarpið!
Samband Íslenskra Kúabænda fundaði nefnilega í gær og ræddi um innflutning erlendra kúastofna...kjánar! Ég hef alveg afskaplega takmarkaðan áhuga á því að mjólkin verði skemmd með erlendum nýungum...viðurkenni þó að ég get drukkið ákveðna þýska mjólkurtegund (þessa með bláu töppunum í flöskunum) og finnst hún bara ágæt!

En það jafnast ekkert á við íslenska mjólk!

Föstudagsblogginu...

14. október 2007 klukkan 20:52

...seinkaði sökum lélegrar nettengingar!
Það var ekki eintóm leti sem varð til þess að ég bloggaði ekki á föstudaginn heldur er ofurmegasúperháhraða-internettengingin ekki að standa sig þessa dagana. Mér (og ykkur greinilega líka) til mikillar armæðu!
En það er langt síðan ég skrifaði eitthvað af viti á þessa síðu hérna - enda einstaklega upptekin við ...ekki neitt..!

Skólinn gengur eins og hann gengur, líður að vísu stundum eins og ég sé í efnafræði, líffræði og lífefnafræði fyrir seinfæra og hafi villst inn á félagsfræðibraut í framhaldsskóla með tilheyrandi uppeldisfræðiáföngum og sálfræðilegum kenningum! Kannski er það þessvegna sem ég sakna stærðfræði svona mikið - hef staðið sjálfa mig að því að kíkja á heimasíðu sem Níels Karlsson og félagar halda úti sem stuðningsefni við STÆ bækur sínar.

Hlakka til jólafrísins, þá verða STÆ bækurnar sko dregnar upp og lesnar í sundur!

Annars fer ég í síðasta prófið mitt 14. desember, og kemst þá í jólafrí! Rúmri viku fyrr en ég er vön og get því bakað og föndrað af vild fyrir hátíðirnar. Reyndar er ég alveg sérstaklega fljót að baka núna því ég keypti mér KitchenAid vél í vikunni - hún er dásamleg og appelsínugul!
(Takk allir sem gáfu mér KitchenAid pening í stúdentsgjöf!)

Ţađ kemur...

08. október 2007 klukkan 20:37
...blogg á föstudaginn :)

Hér er einn...

12. september 2007 klukkan 13:10
...fyrir hin nördin í heiminum:



Magnaður brandari - og á morgun kemur Andri heim ekki á morgun heldur hinn :)

Biđrađir...

10. september 2007 klukkan 13:52
...í höfuðborginni!

Ég fór á fyrsta Reykjavíkur-djammið mitt um helgina!
Mér fannst þetta ekki jafn undraverð lífsreynsla og margir vilja meina, enda er ég ekki sérlega þolinmóð að bíða í röðum og fannst ekkert gaman að ókunnugur maður sagði mér að hætta að borða hamborgara og franskar því rassinn minn væri svo stór!
Svo hafa skemmtistaðir í Reykjavík ákveðið að hækka aldurstakmarkið hjá sér úr 20 árum upp í 22 ár (eða 25) - sem þýðir að ég er ennþá of ung til að skemmta mér í höfuðborginni!
Ég hafði auðvitað ekki hugmynd um þetta þegar ég lagði af stað niður í miðbæ, og flaggaði bara mínu ökuskírteini sem segir að ég sé aðeins tvítug!

Dyraverðirnir eru samt blessunarlega flestir með discalculu, en það veldur því að þeir eru algerlega blindir á tölur og geta ekki fyrir sitt litla líf reiknað það út hvað einstaklingur fæddur árið 1987 er gamall - svo við Kristín komumst alltaf inn!

Það sem mest fór í taugarnar á mér við Reykjavíkurdjammið var að geta ekki labbað heim heldur þurfa að standa í klukkustund í leigubílaröð í strætóskýli fyrir neðan Menntaskólann í Reykjavík!
Þar tróðst fólk framfyrir, rúmlega þrítugar konur rifu kjaft við alla í kringum sig og feit Hlöllalyktin var ærandi!

Fyrir utan þetta djamm var ferðin hin ágætasta, eyddi góðum tíma með Kristínu og Þorgerði systur en láðist að hitta minn elskulega 4.T sem var í raun og veru hvergi og neinstaðar á laugardagskvöldinu - nema Gitta, Aron og Raggi (und naturlich Sæþór) sem voru víðsvegar annarsstaðar en ég!

Nú eru aðeins 5 dagar í að Andri komi heim og ég bisa við að læra eyrnamörk á íslensku sauðfé og til að leiðast ekki jafn mikið án hans!

Nú getið þið reynt líka!

Í stuttu máli:

  • Nafn: Sigrún Benediktsdóttir
  • Stađur: Akureyringur í Reykjavík!
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Lćknanemi viđ Háskóla Íslands
  • Annađ: "Freedom is not worth having if it does not include the freedom to make mistakes." (Ghandi)

4.T á útskriftardaginn

Veriđ innilega...

...og hjartanlega velkomin á síđuna mína!
Allar (ónauđsynlegustu) upplýsingar um mig er ađ finna á undirsíđunni "SigrúnBen" og mćli ég međ ţví ađ ţiđ skođiđ hana til ţess ađ fá ögn innsýn í hugarheim minn!

Endilega skrifiđ í gestabókina, eđa látiđ skođanir ykkar í ljós međ athugasemdum viđ nýjustu fćrsluna!

Af gefnu tilefni...

...langar mig ađ koma ţví á framfćri ađ ég mun eyđa öllum athugasemdum sem ritađar verđa á síđuna mína undir dulnefni eđa án nafns!

Ef fólk hefur einhverjar athugasemdir skal ţađ koma ţeim á framfćri undir egin nafni hvort sem ég ţekki viđkomandi mikiđ, lítiđ eđa ekki neitt, og sýna ţar međ mér og öllum ţeim er síđuna skođa, kurteysi og virđingu.